Hér er svo mynd af jólagjöfunum þetta árið.
Hér ætla ég að tala um lífið, tilvernuna, uppeldi og annað drasl sem dúkkar upp.
Fyrir mér hefur aldur alltaf verið afskaplega afstæður. Á meðan fólk er að hafa áhyggjur af ellini allt í kringum mig horfi ég bara fram á vegin og hlakka til að eldast. Það ætti í raun ekkert að skipta máli hvað við erum gömul, við eldumst ekkert hægar ef við höfum alltaf áhyggjur. Eins og með gott rauðvín þá verðum við bara betri með aldrinum, fáguð, þroskuð og bragðmikil.
Ok ... ég finn semsagt ekki eina vefsíðu sem ég hélt mjög mikið upp á. Nafnið á henni er algjörlega dottið úr mér enginn kannast við hana þegar ég spyr.
Á laugardeginum fórum við Sólarsala fjölskyldan út að borða. Ákváðum að prufa nýjan stað á Frakkarstígnum sem heitir Indian Mango. Við fengum að bragða á hinum ýmsu réttum og bragðaðist allt ótrúlega vel. Eftir að foreldrarnir höfðu farið heim í háttinn með krakkana löbbuðum við Erla ásamt systur Erlu, Elvu og kærasta hennar Magga niður Laugarveginn á pöbbarölt. Enduðum svo í góðu grilli með Gulla félaga inni á Kaffibarnum. Þar voru nokkrir bjórar drukknir auk þess sem mikið geirvörtuklíping fór fram.
Á sunnudeginum var svo skundað á Devitos í þynnkumat og var einni 16" skolað niður með ísköldu coke í dós til að slá á þynnkuna sem var ólýsanlega óbærileg þetta skiptið. Seinna um daginn fór ég svo í innibolta með strákunum og var tekið vel á því enda þessi drengir ekki þekktir fyrir annað.
Í Kaupmannahöfn búa rónar. Það mætti jafnvel ganga svo langt og segja að Kaupmannahöfn sé "rónaborg." Heima á fróni er flott að vera róni, þú færð flott götunafn eins og Lalli Johns eða Hringur og ef þú ert heppinn þá kemuru í Séð og Heyrt afþví þú fannst gamlan leðurjakka á haugunum.
Þá hefur þessi ágæta helgi runnið sitt skeið og hefur vægast sagt verið stíf dagská síðustu daga. Á föstudeginum var haldið, ásamt pabba hennar Erlu og konu hans á Reef'n Beef þar sem ég fékk tækifæri á að smakka Emúa og Kengúru. Svolítið spes kjöt að sjálfsögðu en mjög gott engu að síður. Í eftirrétt var svo "Death by Chocolate" eins og það heitir á matseðlinum ásamt glasi af Camus Extra og heitu kaffi. Ég stóð svo varla í lappirnar þegar við löbbuðum út af staðnum, svo mikið var étið!
Á laugardeginum fórum við svo í túristaferð niður í Christaníu (sjá inngang á mynd). Ég hafði aldrei komið þangað áður og var svolítið spenntur að sjá þetta umtalaða hverfi í Kaupmannahöfn. Við löbbuðum þarna um og skoðuðum varning sem var til sölu, kíktum á mannlífið þarna og settumst niður í einn öl. Bara allt í allt nokkuð skemmtilegur leiðangur. Eftir Christaníu var haldið niður í bæ þar sem við tókum púlsinn á mannlífinu áður en við löbbuðum upp Strikið og tókum strætó heim. Guðjón Ingi var svo í næturpössun hjá afa sínum og ömmu á hótelinu um kvöldið og við konan fórum í matarboð með Runa og Heiðrúnu hjá Herr Laddmundi og konu hans Þórunni. Aldeilis fínn matur sem þau hjónin höfðu eldað og átu allir á sig gat (að sjálfsögðu). Eitthvað var nú Christaníu gangan farin að segja til sín því ég dottaði aðeins eftir matinn.
Ég er búinn að vera að fylgjast með frábærum þáttum sem heita "Penn og Teller: Bullshit." Þessir þekktu töframenn fara þar ofan í saumana á veraldlegum hlutum eins og trúverðugleika Biblíunar og blótsyrðum landa sinna.
Ég ætla að skjóta á að þetta verði frétt ársins. Afhverju fréttir um stríð, hungur og atvinnuleysi? Þetta er það sem fólk vill fá að sjá!Þá segir Boof að bin Laden hafi „látið móðan mása" um uppáhaldssjónvarpsþætti sína, en það eiga að vera þættirnir The Wonder Years, Miami Vice og MacGyver, allir hluti af bandarískri menningu.Kallinn fær þó smá respect fyrir að hafa horft á Wonder Years :)

Ég var duglegur að glugga í bækur í fríinu og kláraði ma. frábæra teiknimyndasögu, "V" For Vandetta. Ég var fyrir löngu búinn að ákveða að klára bókina áður en ég sæi myndina svo það var loksins um helgina sem ég settist niður og horfði á þessa annars fínu mynd. Laddi vinur lánaði mér aðra bók að lesa og heitir hún Maus eftir Art Spiegelman. Einstaklega vel heppnuð bók sem fjallar á sannsögulegan hátt um seinni heimsstyrjöldina og helför Nasista gegn Gyðingum. Bókin er sett upp í teiknimyndaformi þar sem höfundurinn notast við dýr til að teikna sögupersónur sínar. Þannig verða Gyðingar mýs, Nasistar eru kettir, Kanar eru hundar og Pólverjar eru svín til að nefna eitthvað. Þess má geta að bókin er fyrst teiknimyndabóka til að fá Pulitzer verðlaun.
Mánaðarlöngu knattspyrnumaraþoni lauk með dramatískum hætti í gær þegar mínir menn, Frakkar þurfu að láta í minni pokann fyrir Ítölum. Þessir spilltu, spagettíétandi fávitar fóru með sigur af hólmi eftir vítaspyrnukeppni þar sem markmenn beggja liða hefðu alveg eins getað staðið á hliðarlínunni á meðan. Það sem aðskildi gullið frá silfrinu þetta árið var sláarskot, sem með smá heppni hefði alveg getað endað í netinu.
Þá fer þetta að bresta á. Nú er aðeins 8 dagar í langþráða sólarlandaferð með fjölskyldunni. Á þriðjudaginn í næstu viku verð ég sitjandi við sundlaugabarinn á Tenerife með Margaritu í annari og sunblock-ið í hinni.Mikið saknar maður hennar þegar hún hverfur í nokkra daga. En það er sennilega betra en að þurfa að sakna hennar í nokkrar vikur eða mánuði eins og sumir gera í klakaboxinu.
Tók klassískan "föstudagspakka" í hádeginu. Hjóla niður Vestebrogade og niður á Strikið þar sem tékkað er á púlsinum. Slatti af fólki, mis vel klætt í góða veðrinu auðvitað. Hjóla aftur til baka og koma við á Mikka og henda sér svo í Sport Masteren. Þetta gerðum við laddmundur reglulega þegar hann sá sér sóma í að vera hérna með mér í Danmörku. Þessi ferð var tribute til hans ...
HM á eftir. Einn stærsti leikur á HM fyrr eða síðar. Lið sem bæði hafa hampað Heimsmeistaratitlinum og mæst tvisvar í úrslitum HM ('86 og '98 ef mig minnir rétt).
ARGENTÍNA vs. ÞÝSKALAND
Þessi á eftir að fara í sögubækurnar ........
Á föstudag fyrir helgi opnaði Sjóvá nýtt hús sem allt er helgað forvörnum. Húsnæði liggur svo til í bakgarðinum hjá Sjóvá eða í því húsnæði sem áður hýsti prentvélar Morgunblaðsins. “Markmiðið með Forvarnahúsinu er að efla og samræma forvarnir í landinu með aðal áherslu á slysavarnir. Forvarnahúsið verður þannig öflugt þekkingarsetur um slysavarnir. Eitt helsta hlutverk Forvarnahússins er að miðla upplýsingum og fræða almenning um slysavarnir. Starfsmenn Forvarnahússins munu starfa með fyrirtækjum, félagasamtökum og opinberum aðilum að eflingu og samhæfingu slysavarna.„Að þessu tilefni var opnuð síða með upplýsingum um verkefnið. Síðuna hannaði ég og sáu félagar mínir hjá Origo (aka. TM Software) um að vefa þetta saman. Verkið tók aðeins viku að gera (hönnun + forritun) og finnst mér bara hafa tekist bærilega til. Hvað finnst þér?
Ég var að enda við að horfa á leik Portúgala og Hollendinga. Í leiknum voru gefin 12 (16) gul spjöld og 4 rauð! Í gamla daga fékk fólk eitthvað fyrir peningana sína þegar það borgaði sig inn á slíkar viðureignir. Núna eru þetta bara slaksmál í hverju horni eftir að einhver hrynur í grasið við minnstu snertingu .... slæmur dagur fyrir knattspyrnuna.
En það var nú ekki það sem ég ætlaði að skrifa um. Ég er þessa dagana mikið að spá í kennimarki mínu á netinu eða Online-Identity eins og það héti á enskunni. Mér finnst nefnilega ímynd mín afskaplega reitingsleg ef svo má að orði komast. Í dag eru allir sem eitthvað skoða netið með sitt eigið kennimark, ekki ósvipað og fyrirtæki gera til að aðgreina sig frá öðrum og standa út. Þetta snýst allt um að vera með gott eigið brand. Tökum dæmi:
Á mánudeginum fórum við fjölskyldan með Hildi tengdó í Legoland. Hildur er með bílaleigubíl sem við auðvitað notuðum til ferðalagsins enda dágóður spölur. Fengum þetta fína veður og skemmtum okkur konunglega innan um allar hinar fjölskyldurnar í Legoland. Guðjón Ingi lék við hvern sinn fingur og skemmti sér auðvitað mjög vel eins og við hin.

Þegar ég bjó á Íslandi blöskraði mér oft yfir öllum þeim ruslpósti sem flæddi inn um lúguna í hverri viku. Eftir að ég flutti til Danmerkur hef ég komist að því að Ísland kemst ekki með tærnar þar sem Danirnir hafa hælana í framleiðslu á ruslpósti. Þessa mynd tók ég í dag eftir að hafa raðað upp ruslpósti dagsins ... já DAGSINS!
Góða Sylvía Nótt. Nú er þinni dramatísku ferð til Aþenu lokið, öllum íhaldssömum evróvision tepru fíklum til mikillar gleði. Ferðin var góð og mjög gleðileg að mínu mati. Ég skal fúslega viðurkenna að ég horfi aldrei á þátt hennar þegar hann var á dagskrá Skás Eins og hafði meira að segja óbeit á stúlku en eftir að hún fór á svið með lagið sitt og tilburði þá féll ég fyrir henni.

Mig hefur alltaf langað til að mynda dæmigerðann dag í lífi mínu. Í dag tók ég mig svo til og lét af verða. Þetta er að vísu ekki alveg heill dagur hjá mér en sennilega nær hann frá 10-18. Venjulega vakna ég 7.30 og nú er kl. að ganga 1 eftir miðnætti svo ég er oft lengur frameftir en flestir Danir. Allavega, ég tók myndavélina með mér hvert sem ég fór og stillti símann á 30 mínútna áminningu. Í hvert skipti sem ég heyrði í símanum reif ég upp vélina og tók mynd, með það fyrir augum að fanga momentið. Ekkert zoom, engar uppstillingar, bara að taka mynd. Svo raðaði ég þessu saman í tímaröð og má sjá útkomuna hér til hliðar. Hvet alla til að prufa þetta við tækifæri :)