· Keypti mér prentara í síðustu viku. Canon PIXMA MP450.
· Tengdó og konan hans að koma í dag.
· Djöfull er Arsenal búið að skíta upp á bak.
· Er búinn með 1/3 af GTA fyrir PSP.
· Hlutabréfin í Apple hækka og hækka.
· DV er sori.
· Þorrablót Íslendingafélagsins nálgast.
· Ég elska Danmörku.
· Rassgat.
föstudagur, janúar 13, 2006
þriðjudagur, janúar 10, 2006
"Nú, það er ekki eftir neinu að bíða ..."
"... en bíðum samt aðeins." (setning fengin að láni úr Áramótaskaupi Sjónvarpsins 1985)
Laddmundur hefur skotið á mig og í þetta skipti skaut hann neðarlega. Ég get ekki annað en komið með rosalega færslu, færslu sem á eftir að fá fólk til að klóra sér í hausnum og velta fyrir sér hvort maðurinn sé ekki bara mesti blogg snillingur vestan Elliðána. Færslu sem á eftir að fá gamla heimspekinga til að velta sér við í gröfinni.
.... en fyrst, ætla ég í sturtu.
Laddmundur hefur skotið á mig og í þetta skipti skaut hann neðarlega. Ég get ekki annað en komið með rosalega færslu, færslu sem á eftir að fá fólk til að klóra sér í hausnum og velta fyrir sér hvort maðurinn sé ekki bara mesti blogg snillingur vestan Elliðána. Færslu sem á eftir að fá gamla heimspekinga til að velta sér við í gröfinni.
.... en fyrst, ætla ég í sturtu.
miðvikudagur, desember 07, 2005
Ég man sko eftir Ladda!
Ég man eftir því þegar hann Þórhallur Helgason ætlaði að taka bloggheiminn með stormi ... "What happened to you man??"
miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Allt er þegar tvennt er
Þá er afhendingu Vefverðlaunanna lokið. Þau fóru fram við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær. Þar sem ég bý erlendis sá ég mér ekki fært að mæta á verðlaunin sem ég hefði betur gert því ég vann til tvennra verðlauna (þegar ég segi "ég" þá á ég auðvitað við mig og alla þá sem unnu með mér). Verðlaunin fékk ég fyrir vef Íslandsbanka, isb.is. Þau voru veitt fyrir besta fyrirtækjavefinn og besta útlit og viðmót. Mbl.is fékk svo verðlaun sem besti Íslenski vefurinn fyrir nýja leitarvél sína Embluna. Einnig fékk síða Skjásins verðlaun fyrir afþreyingu og vefur Árna hamstur fékk svo verðlaun fyrir besta einstaklingsvefinn. Það sem hefur þó varpað svörtum bletti á þessa annars ágætu hátíð er fólk sem finnur sig neytt til að fara af stað með samsæriskennigar, þessi þekkir þennan, sem þekkir þennan, sem er í dómnefnd. Það voru meðlimir í dómnefnd sem gátu ekki verið hlutlausir en varamenn voru fengnir til að taka þeirra stöðu ef upp komu hagsmunaárekstrar. Ég hef setið í þessari dómnefnd og get fullvissað alla um að hér fer fram heiðarleg og markviss kosning innan dómnefndar. Ég læt þetta duga í bili. Ég ætla að njóta verðlaunanna, laus við alla neikvæðni og svartsýni sem virðist einkenna suma Íslendinga.
Lifið heil.
Murr me good
Fór á Mugision tónleika á föstudagskvöldið. Ég ætla ekkert að vera að skafa af hlutunum, maðurinn er snillingur! Við runi gerðumst svo danskir að við hjóluðum á tónleikana með aðra höndina á stýrinu og hina um ískalda bjórflösku. Mannmergðin var mikil þegar við gengum inn í reykmettann salinn á Mini Vega. Reykurinn vandist þó fljótlega og ekki leið á löngu þar til meistari Mugison steig á sviðið. Hann byrjaði kvöldið á ansi vafasömum nótum þegar hann byrjaði að tala um hvílíka skitu hann hefði verið með rétt áður en hann fór upp á svið. Að hans sögn veitti þó alltaf á gott að fá skitu rétt fyrir tónleika. Þetta eru mínir fyrstu tónleikar með Mugison, ég hef aðeins hlustað á diskana hans en aldrei virkilega dottið í gírinn eins og svo margir mínir félagar (Eiki :)) En þarna stóð hann með gítarinn að vopni og einn lítinn soundsampler og maðurinn var eins og heil helvítis hljómsveit. Áður en varði var hann farinn að hamast á tækinu, blanda saman tónum, taka upp áhorfendur og mixa þessu saman í eitthvað sem aðeins má líkja við frumsamin hljóðljóð. Svona hélt hann áfram fram eftir kvöldi og meira að segja blindfullu danirnir sem stóðu fyrir aftan okkur og mösuðu fyrstu 20 mínúturnar af tónleikunum voru farnir að hlusta.
Eftir mikið lófaklapp og ósk um endurkomu á sviðið steig meistarinn aftur á stokk og tók þá lag sem er sennilega það eina sem ég get raulað með, lagið Murr Murr. Það fer ekkert á milli mála að Mugison er án efa eitt mesta efni okkar Íslendinga í dag, hands down.
fimmtudagur, nóvember 24, 2005
þriðjudagur, nóvember 22, 2005
mánudagur, nóvember 21, 2005
Lömbin þagna
í gær buðum við runa og Heiðrúnu, Þórunni og Þórhalli heim í mat. Eldað var dýrindis íslenskt lambalæri sem tók alls 3 klukkutíma að matreiða. Boðið var upp á ekta íslenskar grænar baunir sem svo var skolað niður með ísköldu malti&appelsíni. Ekki laust við smá heimþrá um leið og maður renndi þessu öllu saman niður. Ekki nema tæpar 4 vikur í heimför samt ...
Annars var helgin nokkuð góð í heildina. Fórum í labbitúr á laugardeginum, það er svo fallegt vetrarveðrið hérna í Kaupmannahöfn, skítkalt en sól og blíða. Skellti mér svo með ladda "T-bone" í fótbolta í gær (sunnudag) og tókum við á því ásamt 8 öðrum Íslendingum í fúsbolta. Hefði viljað lúra örlítið lengur í morgun ...
Annars var helgin nokkuð góð í heildina. Fórum í labbitúr á laugardeginum, það er svo fallegt vetrarveðrið hérna í Kaupmannahöfn, skítkalt en sól og blíða. Skellti mér svo með ladda "T-bone" í fótbolta í gær (sunnudag) og tókum við á því ásamt 8 öðrum Íslendingum í fúsbolta. Hefði viljað lúra örlítið lengur í morgun ...
þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Helgin
Djöfull getur maður verið latur við að skrifa. Það nær engri átt. Anyway, fátt annað að gera en að redda því í hvelli með því að útlista hvernig síðustu dagar hafa liðið. Fór til Íslands með fjölskylduna í síðustu viku. Nokkra daga vinnuferð sem Erla og Guðjón Ingi ákváðu að nýta til að sækja fjölskylduna heim. Vinna á fimmtudeginum og fundarhöld allan föstudaginn, var orðinn frekar þreyttur. Vorum í góðu yfirlæti hjá Jóhanni og Hildi tengdó, enda ekki að búast við öðru. Fórum svo úr klakaboxinu á sunnudeginum, fegin að vera komin aftur heim í danska veðráttu aftur.
Þrátt fyrir slaka daga í mínu eigin bloggi hef ég verið að koma fjölskyldunni í bloggið á meðan. Setti nefnilega upp síðu sem gengur undir heitinu Akurgerði og eru flestir fjölskyldumeðlimir búnir að skrá sig og byrjaðir að blogga. Einstaklega gaman að geta fylgst með því hvað þau eru að gera á meðan maður er sjálfur erlendis. Kíkið endilega á það :)
Lestin á leiðinni, best að henda sér. Bæ í bili.
Þrátt fyrir slaka daga í mínu eigin bloggi hef ég verið að koma fjölskyldunni í bloggið á meðan. Setti nefnilega upp síðu sem gengur undir heitinu Akurgerði og eru flestir fjölskyldumeðlimir búnir að skrá sig og byrjaðir að blogga. Einstaklega gaman að geta fylgst með því hvað þau eru að gera á meðan maður er sjálfur erlendis. Kíkið endilega á það :)
Lestin á leiðinni, best að henda sér. Bæ í bili.
þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Tussuleg helgi
Þá er helgin yfirstaðin. Var frekar tussuleg í þetta skiptið. Byrjaði helgina á því að liggja rúmliggjandi með magaverki eftir allt nammiátið á föstudagskvöldinu. Lág svo fyrir mest alla helgina með makakrampa og lystarleysi. Það var þó ánægjulegt að sjá Chelsea tapa sýnum fyrsta leik í deildinni og það á Old Trafford. Nú er bara að vona að þeir taki flugið ... beint niður. Nú er maður allur að koma til og hlakkar mikið til komandi viku, enda mikið að gerast ... :)
föstudagur, nóvember 04, 2005
Danskar köngulær
Hvar annarstaðar en í Danmörku er maður að labba úti á miðri götu og allt í einu flækist maður í köngulóavef? Þær eru bókstaflega allstaðar ...
sunnudagur, október 30, 2005
laugardagur, október 29, 2005
Haustið og hjólin
Laugardagur. Við Erla og Guðjón Ingi fengum okkur göngutúr í morgunsárið. Augljóslega farið að hausta, orðið kalt og vetur konunugur er farinn að blása. Við löbbuðum því ekki langt áður en við hentumst inn í strætó og tókum hann næstum alla leið. Leiðinni var haldið í hjólreiðaverslunina Jupiter sem liggur á Gammel Kong Vej. Sagan segir að þetta sé ein sú besta hjólreiðabúð í Kaupmannahöfn (þótt persónulega finnist mér þær allar eins, litlar og rándýrar!). Erla á inni hjá mér afmælisgjöf síðan á mánudaginn og ætlaði ég að verða henni úti um eina þá og þarna. Þeir sem hafa einhverntíma farið í danska hjólreiðaverslun vita að hjól eru ekki ódýr, þau eru munaðarvara. Erla fann hjól sem henni líkaði og fékk að prufa það úti á götu. Verðmiðinn á svoleiðis hjóli er 40 þús. íslenskar hvorki meira né minna. Þetta var kannski full mikill peningur því á endanum hrökluðumst við út úr búðinni og héldum aftur heim á leði. Kannski bíð ég í nokkra daga og sé hvort ég fæ útborgað, þá gæti ég líka komið henni á óvart :)
þriðjudagur, október 25, 2005
Sony PSP™
Mikið var ég glaður þegar tengdó kom með eitt stk. Sony PSP (PlayStationPortable) úr fríhöfninni á fimmtudaginn. Mig er búið að langa í eitt kvikindi síðan þetta kom á markað á síðasta ári og varð draumurinn því loks að veruleika. Ég er auðvitað ekki búinn að setja þetta niður síðan ég fékk þetta enda ekki annað hægt. Þegar maður ferðast jafn mikið og ég í almenningsfarartækjum þá er ótrúlega hentugt að hafa þetta á milli handanna til að stytta tímann. Svo er laddi félagi búinn að kaupa sér tæki líka svo nú getum nördast saman í lestinni á leiðinni til og frá Malmö :D
Kengúrur og krókudílar
Þá er helgin á enda. Hún var ansi viðburðarík í þetta skipti þar sem pabbi hennar Erlu og konan hans komu í heimsókn til okkar í nokkra daga. Það var mikið étið og drukkið, verslað og spjallað eins við ber. Hæst ber þó að nefna ferð okkar á Ástralskan cuisine stað sem heitir Reef'n Beef. Hann er staðsettur niðri í miðbæ og er hægt að fá þar ma. kengúru, emúa eða krókudíl. Við skelltum okkur auðvitað í þriggja rétta máltíð eins og sönnum Íslendingum sæmir og smökkuðum á öllum pakkanum. Óhætt að mæla með þessum stað fyrir sanna sælkera :) Erla sæta átti svo afmæli í gær og elduðum við gott nautakjöt og drukkum rauðvín. Til hamingju með afmælið dúllan mín.
fimmtudagur, október 13, 2005
Fleiri útgjöld?
Það er alltaf sama sagan. Einmitt þegar maður heldur að Apple framleiði ekki fleiri tegundir af iPod-um þá koma þeir með enn eina nýjungina. Það er eins gott að maður er ekki að kaupa þetta um leið og það kemur í búðirnar! Í síðustu viku langaði mig í iPod Nano og þessa vikuna langar mig í iPod Video. Óskalistinn á Amazon er orðinn ansi síður...
sunnudagur, október 09, 2005
Bubbi er vinur minn!
Ekki þykir mér leiðinlegt að fara á Bubba tónleika, hvað þá ef þeir eru haldnir hér í kóngsins Kaupmannahöfn. Við runi gerðum okkur dagamun og skelltum okkur á þessa annars ágætu tónleika. Þeir voru haldnir á Bryggen sem er einskonar menningarhús okkur Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Bubbi byrjaði á rólegu nótunum og spilaði mikið af nýju efni. Það fór ekkert á milli mála að skilnaðurinn við Brynju hefur tekið á sálina og skein það í gegnum lagatextana hans. Hann tók þó einn og einn slagara inn á milli eins og Stál & hníf (stuttu útgáfuna), Syneta og auðvitað mitt uppáhald, Rómeo og Júlíu. Hann var svo kallaður tvisvar upp á svið eftir mikið lófatak áhorfenda og tók þá langann og blúsaðann gítarsóló sem endaði með því að einn strengurinn slitnaði. Sannur rokkari þarna. Lifi byltingin!!
Peter Bangs Boozt
1 bolli appelsínusafi
1 bolli vanillu jógúrt
1 banani
6 stk frosin jarðaber
4 stk. hindber (ekki must)
0.5 stk. pera (skrælluð)
4 stk. klaki
Setti í blandara og blandað til fjandans!
Gjöriði svo vel :)
1 bolli vanillu jógúrt
1 banani
6 stk frosin jarðaber
4 stk. hindber (ekki must)
0.5 stk. pera (skrælluð)
4 stk. klaki
Setti í blandara og blandað til fjandans!
Gjöriði svo vel :)
föstudagur, október 07, 2005
Dönsk veðrátta
Hvernig er hægt að sakna Íslands á degi sem þessum? Það er komið fram í Október og ennþá er betra veður úti en á heitustu sumardögum á Íslandi. Ég sótti Guðjón Inga í leikskólann og löbbuðum við feðgar heim að venju í þetta skipti í 18 stiga hita og glaða sólskini. Mér var svo heitt að ég þurfti beinlínis að fækka fötum. Veður spáin segir mér líka að svona verði þetta út vikuna ... jafnvel lengur.
þriðjudagur, október 04, 2005
Lögvernduð vinnuheiti
Ég er grafískur hönnuður. Ég er með menntun sem grafískur hönnuður og starfa einnig sem slíkur í daglegu lífi. Líf mítt snýst að miklu leiti um grafíska hönnun. Ég lifi og anda henni daglega, spái í henni, skoða hana, hugsa um hana og dreymi um hana á nóttunni (svona stundum).
En hvað er "grafískur hönnuður?" Í raun er grafískur hönnuður virkilega ómerkilegur titill. Það getur hver sem er kallað sig grafískan hönnuð. Ég rakst á fyrirtækja síðu um daginn. Þar er greinilega mjög hæfileikaríkt fólk á launaskrá því framkvæmdastjórinn er allt í senn gjaldkeri, verkefnastjóri, forritari og já, hönnuður! Forritararnir þar nota ekki aðeins hægra heilahvelið heldur eru þeir jafnvígir á báðar hliðar heilans og geta þannig forritað í Java og REALbasic en samhliða geta þeir hannað líka þar sem þeir eru titlaðir grafískir hönnuðir (sjá Óla).
Kannski ætti þetta að pirra mig eitthvað. Ég meina ég er nú bara búinn að vera í háskólanámi í 4 ár að teikna, leika mér og drekka kaffi. Það er ekkert miðað við lækna og verkfræðinga em eyða mörgum árum í að útskrifast með fínt vinnuheiti.
Það er aldrei að vita nema maður skelli sér í meira nám og nái sér í eitthvað almennilegt lögverndað vinnuheiti ...
Kveðja,
Jóna tannlæknir
En hvað er "grafískur hönnuður?" Í raun er grafískur hönnuður virkilega ómerkilegur titill. Það getur hver sem er kallað sig grafískan hönnuð. Ég rakst á fyrirtækja síðu um daginn. Þar er greinilega mjög hæfileikaríkt fólk á launaskrá því framkvæmdastjórinn er allt í senn gjaldkeri, verkefnastjóri, forritari og já, hönnuður! Forritararnir þar nota ekki aðeins hægra heilahvelið heldur eru þeir jafnvígir á báðar hliðar heilans og geta þannig forritað í Java og REALbasic en samhliða geta þeir hannað líka þar sem þeir eru titlaðir grafískir hönnuðir (sjá Óla).
Kannski ætti þetta að pirra mig eitthvað. Ég meina ég er nú bara búinn að vera í háskólanámi í 4 ár að teikna, leika mér og drekka kaffi. Það er ekkert miðað við lækna og verkfræðinga em eyða mörgum árum í að útskrifast með fínt vinnuheiti.
Það er aldrei að vita nema maður skelli sér í meira nám og nái sér í eitthvað almennilegt lögverndað vinnuheiti ...
Kveðja,
Jóna tannlæknir
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
