mánudagur, ágúst 13, 2007

Beygla i hádeginu :-)



Jonathan Simpson?

Í afar fjarlægum heimi þar sem fólkið er gult og hefur aðeins fjóra fingur þá mundi ég líklega líta einhvernveginn svona út. Þökk sé simpsonizeme.com síðunni er nú hægt að senda inn mynd og láta vél um að útbúa Simpsons útgáfu af þér :)

Original Design Gangsta!

Á mánudagsmorgni er fátt betra en fyndnar videoklippur! Give it up for Design Gangsta Yo!!

laugardagur, ágúst 11, 2007

Hestamadurinn!


Fyrsta skipti á hestbaki i dyragardinum

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

iMac fegurð!



Ég stend hérna í Apple búðinni við Vesterbrogade og er að prufa kvikindið, stóru týpuna. Það eru nokkur atriði sem ég gæti tekið fram.

Kostir:

Svarti ramminn er mjög flottur og kemur þægilega á óvart.

Hún er hraðari en MacBookPro-in mín

Lyklaborðið er æðislegt. Það er svo létt og dream-y. Ég átti von á stömum gúmmí tökkum en þeir eru bara mjög fínir.

Gallar:

Glossy er out ... fer meira í pirrurnar á mér en ég átti von á.

Tölvan er svaðalega þung, hvað settu þeir eiginlega í hana?!

Mætti vera hægt að halla henni meira aftur, eins og þegar maður stendur við borð og er að vinna.

Yfir allt er ég bara nokkuð sáttur ... ekki blown away en eitthvað sem ég gæti séð fyrir mér í stofunni við tækifæri

Flott musamotta!



sunnudagur, ágúst 05, 2007

Guggi sefur


Eftir langan dag á ströndinni er gott að sofna í garðinum...

Erla i sólbadi



Strandardagur!


Gaman á Amager Strand :-)

laugardagur, ágúst 04, 2007

Paradis!



Dyragardurinn i góda vedrinu


4 sætir ljónsungar komnir i heiminn :-)

Nyja mótorhjólid!


Flottur á kantinum :-)

fimmtudagur, júlí 26, 2007

Minni sykur - meiri gleði

Maður sem gefur upp coke drykkju og minnkar kaffineyslu sína niður í einn bolla á dag þarf að finna eitthvað sem kemur í staðinn. Ekkert ósvipað og óvirkur krakk fíkill sem finnur Jesús. Um daginn fann ég drykkinn sem á að koma í stað alls koffeinsins, drykkur frá fyrirtæki í Bretlandi sem heitir Feel Good Company.

Drykkir frá þessu ágæta fyrirtæki eru án viðbætts sykurs, ekkert af þessu helvítis Aspertam drasli sem er í öllu núna (núna síðast í Mixi á Íslandi!!). Viðbætt vítamín og ég veit ekki hvað og hvað.

Ég skora á alla að sleppa coke-inu í smá stund og bragða á Apple+Blueberry. Þið eigið ekki eftir að sjá eftir því ...

fimmtudagur, júlí 05, 2007

Lunsj með boys

Tókum nettan hádegismat í hádeginu, ég, Hrafn og Haukur. Sólin hefur látið mikið til sín taka undanfarið og alltaf við hæfi að kíkja á Austurvöll í einn Jungle Chicken Curry á Thorvaldsen :)

föstudagur, júní 29, 2007

Bíóferð 4.0

Fór að sjá Die Hard í gær með Erlu. Ágætis ræma með heldur þreyttum Bruce Willis. Munið í fyrstu myndunum þegar vondu kallarnir voru búnir að skjóta á hann úr uzi byssum og hann búinn að henda sér út úr bíl á hundrað kílómetra hraða og stökkva út úr 30 hæða háhýsi og lenda á höndunum þá hallaði hann sér stundum aftur og kom með einn af sinn frægu one-line-erum (ekki I'll be back samt). Í þessari mynd var ég alltaf að bíða eftir "I'm getting to old for this shit." en hún kom aldrei.

Annars er alltaf pínu öðruvísi að fara í bíó á Íslandi í samanburði við Danmörku. Í Danmörku hringir fólk á undan sér eða pantar á netinu og fær úthlutað sætisnúmeri eins og þegar maður fer í leikhús. Það eru engin helvítis hlé (til að græða meira í sælgætissölu) á myndinni og auglýsingarnar eru ekki í tæplega klukkutíma áður en myndin loksins byrjar.

Talandi um auglýsingar þá var ein auglýsing sem vakti áhuga minn í gær. Ekkert sérlega fyndin og dauðans löng en hún vakti áhuga minn afþví hún var öðruvísi en "normið" á Íslandi. Hún byrjaði eins og teiknimyndasaga þar sem rammarnir voru animate-aðir fram og til baka til að skapa spennu. Myndasagan fjallaði um "saklausan" strák sem vantaði einhvern hugbúnað á tölvuna sína og besti vinur hans benti honum á að hann gæti sótt þetta á INTERNETINU! Hann fer í gang með það og install-ar þessum hræðilega "ólöglega" hugbúnaði á tölvuna sína og eyðuleggur sína tölvu og allar tölvur í næsta nágrennni. Góði vinur hans forðar sér hið fyrsta og hann situr eftir með ónýta vél.



Ok. Við vitum öll sannleikann. Ólöglegur hubúnaður eyðileggur ekki vélina þína. Í versta falli sefur þú ekki á næturnar. Kannski þeir hefður átt að láta teiknimyndina snúast um það. Gaurinn kemur þreyttur í vinnuna og er að lokum rekinn fyrir að standa sig ekki í vinnunni. ALLT AFÞVÍ HANN STAL HUGBÚNAÐI Á INTERNETINU!! Sveiattan.

Ágætis auglýsing samt, vel gerð þótt boðskapurinn sé nokkuð vafasamur. Takk Microsoft á Íslandi!

Edit: Ingvi vinur linkar í þetta snilldar Die hard video á síðunni sinni :)

fimmtudagur, júní 28, 2007

Gott veður í borg óttans

Mikið var gott að koma heim í frískt og gott loft. Ekki sakaði að veðrið í höfðborginni er hið besta á meðan veðráttan í Kaupmannahöfn er tja ... hin versta (rigning í 2 vikur stanslaust). Gott að vera kominn heim ... for now.

Í flugvélinni á leið til Íslands


Ég er líka með flugstillingu á mínum síma! Fallegur vængur þarna á ferð.

þriðjudagur, júní 26, 2007

Krotari


Gaman ad skoda dagblöd sem buid er ad krota á